fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Já, nú erum við bæði, hv. þingmaður og ég, fullgildir meðlimir í Félagi eldri borgara eða a.m.k. gjaldgeng í þau samtök og ég hef auðvitað tekið eftir þessum tölvunámskeiðum. Ég áttaði mig reyndar á því fyrst þegar móðir mín fór að vaða á súðum á Facebook og stundum spurði ég mig hvort það hefði kannski verið betra að henni hefði verið kennt aðeins minna, en svo hefur hún smám saman náð tökum á þessu og þetta gefur henni bara mjög mikið. Við eigum, eins og ég nefndi í andsvari við hv. þm. Eirík Björn Björgvinsson, í miklu samstarfi milli háskóla og míns ráðuneytis í gegnum Heilsu Kríu sem er átak til þess að koma velferðartækni inn í skólana, í gegnum Stafræna heilsu, í gegnum áherslu okkar á háskólamenntun, í uppbyggingu okkar t.d. á Háskólanum á Akureyri þar sem við hyggjumst koma upp hermisetri sem bætir stöðu hjúkrunarfræðinema þar og fleira þannig að við eigum í mjög stóru og miklu samstarfi.