fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessa yfirferð. Ég get verið sammála honum í mörgu en hann svaraði mér samt sem áður ekki hvort það væri eitthvert eyrnamerkt fjármagn til að útskrifa fleiri kennara þar sem það er eitt af markmiðunum. Það væri ágætt að fá að vita það. Eins kom hann inn á það að við værum að mennta marga kennara. Hvað eru margir kennarar þá að útskrifast? Hæstv. ráðherra hlýtur að hafa upplýsingar um það. Og hversu hátt hlutfall þeirra er að skila sér í kennslu, fyrst hann segir að það séu ekki nægilega margir að skila sér í kennslu? Ég held að það sé líka afar mikilvægt upp á framhald umræðunnar að fá þessar tölur, því að ég tek alveg undir að það er mikilvægt að fara í úttekt á kennaranámi. En í því ljósi langar mig að spyrja, af því að hæstv. mennta- og barnamálaráðherra lét aðeins að því liggja að það ætti þá kannski að breyta leyfisbréfunum eða lengd námstímans. Kannski er vinnan ekki komin það langt núna hjá ráðuneytinu en mig langar til að spyrja hvort það sé eitthvað til umræðu.