fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Þannig að það sé nú alveg skýrt: Leyfisbréfin eru ekki á mínu borði og það er réttast að spyrja bara viðkomandi ráðherra að því. Ég var ekki að láta liggja að neinu öðru en því sem hefur mikið verið talað um og líka innan kennaradeildar og menntavísindasviðs: Tölur sýna að okkur skortir kennara í þessum ákveðnu fögum. Ég held kannski að á fyrstu stigum grunnskóla þurfi kennari fyrst og fremst bara að vera áreiðanleg og góð manneskja sem hefur hæfileika til að ná til barnanna, en síðan þegar ofar dregur þá þarftu kannski að fara að mennta kennara sérstaklega í nákvæmlega því sem verið er að kenna. Ég er ekki með tölu um fjöldann en við erum að útskrifa nægilega marga kennara. En það þarf að halda þeim í þessu starfi og ég skal útvega þessar tölur, það er alveg sjálfsagt mál, og koma þeim til þingmanns. Það er eyrnamerkt fjármagn til að fjölga í ýmsum greinum, sem ég kom inn á áðan, þar með talið kennurum, og það er gert í gegnum reiknilíkan háskóla.