158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:20]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Ég vil núna í framhaldi af síðustu umræðu aðeins venda kvæði mínu í kross og víkja að innlendri kvikmyndaframleiðslu. Nú er það þannig að kvikmyndasjóðir hafa verið að lækka í framlögum og eru svo frystir, ef ég skil upplýsingarnar í fjárlögum rétt, til lengri tíma og til framtíðar. Þetta er niðurstaða sem við komumst að í skugga töluverðrar umræðu um áhyggjur greinarinnar af stöðunni hérna innan lands, að framlögin hafa verið að lækka til Kvikmyndasjóðs.

Það er mjög hart í ári. Ég held að það sé væg leið til að lýsa hlutunum miðað við þær greinar og þá umfjöllun sem maður hefur séð. Við erum í töluvert auknum mæli, ef ég skil gögnin rétt, að veita fjármögnun til t.d. endurgreiðslna til erlendra verkefna á sama tíma og innlenda framleiðslan er auðvitað í ákveðinni samkeppni við þessi erlendu verkefni. Það er þetta jafnvægi á milli innlendu áherslnanna, að við séum í raunverulegri íslenskri kvikmyndaframleiðslu, á móti því að vera að reyna að laða að erlend verkefni, sem er sjálfstætt og gott markmið út af fyrir sig og gerir auðvitað ýmislegt fyrir bransann, en þessi innlendi þáttur er eitthvað sem menn hafa miklar áhyggjur af.

Ég vil fá viðbrögð hæstv. ráðherra við þessari gífurlega neikvæðu umræðu meðal kvikmyndagerðarmanna um ástandið og ég vil spyrja hvort það sé nokkuð eðlilegt skref að fara, að mati hæstv. ráðherra, í þessa frystingu útgjalda til lengri tíma í kvikmyndasjóðnum. Svo í framhaldinu vil ég spyrja: Hvaða leiðir sér hæstv. ráðherra í að efla nýliðun hérna og tryggja hagsmuni þessarar framleiðslu til lengri tíma?