fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Varðandi flugstöðina í Reykjavík þá er gert ráð fyrir að leitað verði til einkaaðila varðandi fjármögnun og framkvæmd flugstöðvarinnar. Ljóst er að ýmsir hagsmunaaðilar eru í málinu; Isavia og Icelandair, sem eiga núverandi stöð sem var byggð 1946 og er svo sannarlega komin til ára sinna, og aðrir flugrekendur ásamt Reykjavíkurborg. Ráðuneytið mun vinna að því að koma þessu máli áfram í samræmi við samgönguáætlun og í áætluninni er gert ráð fyrir að fyrirkomulagið muni verða einhvers konar framlög frá ríkinu í formi leigu- og þjónustugjalda. Boltinn er svolítið hjá Isavia núna en ráðuneytið mun hafa samband við Isavia til að við getum stillt saman strengi og ég vonast til þess að viðræður geti hafist sem allra fyrst til undirbúnings.
Varðandi Loftbrúna þá hafa fjárheimildir til hennar verið um 600 millj. kr., voru það á síðastliðnu ári. Heildarkostnaður verkefnisins hefur hins vegar verið meiri á árunum 2023–2025 og við erum að skoða það að fara úr 40% styrk eða greiðslu á flugmiðum yfir í fasta krónutölu og ég geri ráð fyrir að það verði fyrr en síðar hvað það varðar.
Varðandi framkvæmdir á Egilsstaðaflugvelli þá eru þær á samgönguáætlun og ég á ekki von á því að það verði eitthvað dregið þar úr og varðandi Vopnafjarðarflugið þá minnir mig að það sé ein ferð á viku sem það minnkar, ég er bara ekki alveg með það á hreinu.