fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Varðandi flugstöðina í Reykjavík þá er ég svo innilega sammála því að það sé gríðarlega mikilvægt verkefni og ég hef þegar látið málefni Reykjavíkurflugvallar mig varða, t.d. varðandi trén í Öskjuhlíð. Það er sérstakt áhugamál hjá mér að við komum af stað og hefjum framkvæmdir sem allra fyrst við flugstöðina við flugvöllinn. Það er eiginlega til skammar að við séum með flugstöð frá 1946 og í því ástandi sem hún er í dag. Ég held að við séum að fá allt of fáa erlenda ferðamenn í innanlandsflugið, í þessari stærstu atvinnugrein okkar, við erum að fá um 2,4 milljónir erlendra ferðamanna hingað og þeir nýta sér ekki innanlandsflugið nægjanlega vel og þetta er ákveðinn gluggi fyrir okkur hvað það varðar.
Varðandi Loftbrúna þá endurtek ég það sem ég sagði áðan: Við erum að skoða þetta, bara þessa dagana, og ég á von á að það komi fyrr en seinna. Ég held að þessi málaflokkur sé gríðarlega mikilvægur.
Varðandi Fljótagöng (Forseti hringir.) þá er gert ráð fyrir hlutafjáraukningu til innviðafélagsins Ganga og brúar og það segir í greinargerðinni að slík hlutafjáraukning gæti verið í formi reiðufjár sem nemur hluta af stofnkostnaði verkefnisins eða annarra tekjuberandi eigna. Það er Vegagerðin sem er að vinna núna að undirbúningi af fullum krafti.