fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnirnar. Varðandi jöfnunarsjóð og grunnskólaframlögin er vinna við endurskoðun hafin. Þetta er flókin vinna en ég vonast til að hún gangi vel fyrir sig. Ég hef fylgst svolítið með henni og það var ákall í meirihlutaáliti umhverfis- og samgöngunefndar með jöfnunarsjóði um að fara í þessa vinnu. Staðan úti á landi varðandi sveitaskólana — ég á ekki von á að þeim fari að fækka þannig að það eru alveg forsendur fyrir því að fara í þessa vinnu. Varðandi þessa áhugaverðu fyrirspurn um það að einn þriðji þeirra sem fara um á bíl á höfuðborgarsvæðinu vilji nota virkan ferðamáta og um ívilnanir til rafhjólakaupa þá er þetta hjá fjármálaráðuneytinu og umhverfisráðuneytinu, þ.e. varðandi styrktargreiðslur. En umhverfisráðuneytið ákvað að takmarka styrktargreiðslur til rafhjóla fyrir tveimur árum og það mætti að sjálfsögðu endurskoða þá ákvörðun. Ég tel mjög mikilvægt að við beitum okkur frekar fyrir virkum ferðamátum, ekki síst úti á landi. Ég sá mjög áhugaverða skýrslu sem við fengum í hendur á síðasta ári varðandi virka ferðamáta, hjólreiðar og annað slíkt, úti á landi og það er mjög áhugaverður munur, menningarmunur, þar á milli sveitarfélaga.
Varðandi borgarlínu þá á ég ekki von á öðru en að haldið verði áfram með það verkefni. Við þekkjum það bara sjálf að það er mikið ákall eftir þessu. Við þurfum ekki annað en að sitja í umferðinni hvað það varðar. Það tengist virkum ferðamátum og líka almenningssamgöngum að taka á þessum umferðarteppum sem eru hér á höfuðborgarsvæðinu.
Varðandi fjármögnun Ganga og brúar þá kom ég inn á það í fyrri ræðu minni að það er heimild til eiginfjáraukningar, hlutafjáraukningar, framlagi til eigin fjár, í það félag í formi reiðufjár eða annarra tekjuberandi eigna. Það verður markaðsdagur í næstu viku í Hörpu til að kynna félagið fyrir fjárfestum og við bindum miklar vonir við það og að það muni breyta — það getur orðið gríðarlega stórt. Varðandi fjármögnun á höfuðborgarsáttmálanum er í 4. gr. höfuðborgarsáttmálans kveðið á um flýti- og umferðargjöld eða þá fjármögnun með öðrum hætti og það eru ákvæði sem þarf að fara að vinna eftir strax 2030. Það er meiri háttar verkefni að koma því af stað.