fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Varðandi nútímavæðingu vegakerfisins, bundið slitlag, fjarskipti og annað slíkt þá höfum við svo sannarlega unnið þrekvirki, íslenskt samfélag. Við erum fámenn þjóð í stóru landi. Við erum fjórir einstaklingar á hvern ferkílómetra, um 400 þús. manns í 103.000 km² landi. Við höfum sannarlega unnið þrekvirki en betur má ef duga skal og það er gríðarleg þörf á því að gera betur, ég geri mér fulla grein fyrir því.
Varðandi skattahækkanir og annað slíkt þá eru tekjustofnarnir ekki markaðir. Við vinnum eftir fjárlögum og við ætlum okkur svo sannarlega að hafa hallalaus fjárlög og koma niður vaxtastigi í landinu. Það er okkar fyrsta verkefni. Þess vegna er þetta gríðarlega aðhald. Það hefur aldrei verið svo að allur peningur af bifreiðum fari til vegasamgangna.
Varðandi framkvæmdir við Fljótagöng þá get ég bent hv. þingmanni á það að í greinargerðinni með fjárlögunum, um heimild varðandi hlutafjáraukningu, kemur fram, með leyfi forseta:
„Til að félagið geti tekið að sér ábyrgð á fjármögnun og framkvæmd Fljótaganga kemur til skoðunar að auka við hlutafé félagsins þannig að það hafi fjárhagslega burði til að standa undir verkefninu og hraða framvindu þess. Slík hlutafjáraukning gæti verið í formi reiðufjár sem nemur hluta af stofnkostnaði verkefnisins eða annarra tekjuberandi eigna.“
Það sem kemur fram í greinargerðinni er það framlag sem mun sjá til þess að hægt verði að vinna þetta hjá Göngum og brúm. Við gerum okkur vel grein fyrir því að þetta er ekki arðbær fjárfesting hvað það varðar.
Ég vona að ég hafi svarað öllum spurningum hv. þingmanns.