fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Mig langar að sjálfsögðu að byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir hans framsögu hér og þessar fínu umræður sem hafa átt sér stað og fínar spurningar sem hér hafa komið fram. Nú er það svo, og það ætti kannski ekki að koma neinum á óvart, að áhugasvið mitt liggur á sveitarstjórnarstiginu og eitt af aðaláherslumálum okkar Viðreisnarmanna varðandi sveitarstjórnarstigið er að það verði eflt og að við komum upp betri stuðningi við það stig. Því langar mig aðeins að fá að heyra frá ráðherra, af því að nú erum við að fara aftur í eða halda áfram með endurskoðun á sveitarstjórnarlögunum, hvernig hann sér fyrir sér að við getum nýtt okkur þessi fjárlög sem nú eru með ákveðnum hætti til að efla sveitarstjórnarstigið. Þá langar mig sérstaklega að nefna sóknaráætlanir landshluta vegna þess að það er gríðarlega mikilvægt verkefni. Ég fagna því mjög sem kemur fram í fjárlagafrumvarpinu, að sóknaráætlanir landshluta verði áfram þróaðar sem farvegur fyrir stuðning við svæði, og því er mjög mikilvægt að fá alla vega svona línur frá ráðherranum um það hvernig hann sér það fyrir sér.
Varðandi samgönguhlutann langar mig að nefna sérstaklega fjarskipti. Það væri gott að fá að heyra aðeins frá ráðherranum hvernig það kemur fram í áætluninni okkar hér vegna þess að það er stórt og mikilvægt verkefni, ekki síst sem öryggismál á öllu landinu. Ég kem betur að því í seinna erindi mínu.