fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Varðandi sóknaráætlanir er reyndar lækkun þar en undanfarin ár hefur fjárlaganefnd komið með aukainnspýtingu, núna á þessu ári 120 milljónir og 140 milljónir tímabundið, og við gerum ráð fyrir og treystum því að það verði áfram svo. Sóknaráætlanir eru gríðarlega mikilvægt tæki til atvinnuuppbyggingar á landsbyggðinni. OECD hefur komið hingað til lands að skoða þetta og Norðmenn hafa líka skoðað þessar áætlanir sem eru mjög, mjög mikilvægar og þarf mikið að standa vörð um.
Varðandi sveitarstjórnarstigið í heild og fjárlögin þá er frumvarpið til laga um ný sveitarstjórnarlög fyrst og fremst réttarbætur. Það er ákveðinn hvati þar til frekari sameiningar varðandi það að íbúar sjálfir geti farið fram á sameiningu, 10% íbúa í ákveðnum sveitarfélögum undir ákveðinni stærð geta farið fram á sameiningarviðræður, og þar er hægt að ná gríðarlegum sparnaði í opinberum rekstri, tel ég, mikil tækifæri. Ég mun koma með og mæla fyrir byggðaáætlun núna í október og þar verða nýjar áherslur. Þar eru 30 nýjar áætlanir eða aðgerðir sem við teljum að muni verða til bóta fyrir sveitarfélög landsins, svo sannarlega. En við þurfum, og það tel ég mjög mikilvægt, að fara að stuðla að því að það komi stærri sveitarfélög í landinu. Við erum með sveitarfélög niður í 50 manns og þau ráða ekki við verkefnið. Það er spurning hvenær við getum farið að tala um sveitarfélag sem sveitarfélag.
Ég held að þetta séu stóru línurnar hvað þetta varðar. Ég vona að ég hafi svarað öllum spurningum hv. þingmanns en hann minnir mig á það ef svo er ekki.