158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[12:05]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svörin og góðar undirtektir. Ég vil bara leggja áherslu á það að ég styð ráðherrann heils hugar í þeim áætlunum sem hann er að leggja fram varðandi samgöngubætur, enda veitir ekki af vegna þeirra innviðaskulda sem við erum að takast á við í dag. En ég hef auðvitað áhyggjur, eins og fleiri, af því að það verði ákveðin verkefni sem eru öryggistengd, sérstaklega í samgöngumálum, sem gleymist eða falli milli skips og bryggju. Og þá bara ítreka spurningu mína varðandi fjarskiptin, að fá aðeins skýringar á því. Það kemur ágætlega fram í fjárlagafrumvarpinu varðandi ljósleiðaravæðinguna í þéttbýli og eins líka ljósleiðaravæðingu lögheimila í þéttbýli að það er mjög mikilvægt verkefni fyrir þjóðarheildina, vegna þess að þetta er verkefni sem er búið að bíða lengi og þarf svo sannarlega að takast á við. En ég ítreka þetta með fjarskiptin, að fá aðeins að heyra hvernig ráðherra sér það fyrir sér.