fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Varðandi fjarskiptin er það þannig að við erum eitt nettengdasta samfélag heims. Það er gríðarlegur árangur sem við höfum náð. Við höfum ljósleiðaravætt bóndabæina og þéttbýli að sjálfsögðu á markaðsforsendum. Það er núna verið að klára litlu þorpin þar sem ekki eru markaðsforsendur. Við munum klára það innan skamms, hvort það eru eitt eða tvö ár í það, þannig að það er gríðarlega mikilvægt. Ég hef sjálfur stutt tvítengingu ljósleiðara í þéttbýli og m.a. farið upp á Skagaströnd til að taka skóflustungu hvað það varðar. Þá er verið að tengja Skagaströnd úr báðum áttum. Tvítengingin er gríðarlega mikilvæg og það er verið að vinna í því líka samkvæmt áætlun. Varðandi fjarskipti á vegum úti þá minnir mig að það eigi að klára á stofnvegunum, hvort það er árið 2028, a.m.k. á þessu kjörtímabili, sem verður komið símasamband á öllum stofnvegum landsins. Það er mikið verkefni og við erum að byrja að huga að tengingu á tengivegunum. Netöryggis- og fjarskiptaáætlun verður lögð fram á þinginu nú í vor og ég bind miklar vonir við að það verði áætlun með góðum aðgerðum.