158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[12:07]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir hans ræðu hérna áðan. Okkur verður tíðrætt um innviðaskuld í vegakerfinu. Hæstv. ráðherra kom inn á að það væru ekki markaðir tekjustofnar hvað það varðar og ég átta mig alveg á því. En þá vekur það líka furðu að þegar við vorum að hækka skatta hér við síðustu fjárlög var verið að tala um að þær tekjur sem kæmu af þeim skattstofnum, m.a. kílómetragjaldi og fleiri skatttekjum, vörugjöldum o.fl., myndu renna til samgöngumála. Vissulega hækkuðu tilfærslur til samgöngumála á síðasta ári fyrir þetta ár einmitt vegna þess að það var svo mikil þörf á að fara í innviðauppbygginguna og vinna á þessari innviðaskuld. Svo sjáum við að það er enn verið að hækka skatta en ráðherra segir að það séu ekki markaðir tekjustofnar og að það eigi ekki að renna endilega inn í samgöngumál en við sjáum að kílómetragjaldið á að skila ríkissjóði um 4 milljörðum. Svo sjáum við að hagræðingin til samgöngumála er bara svipuð tala.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra. Við sjáum að fjárfestingarframlög til samgöngumála eru að lækka úr 43,8 milljörðum í 40,1 milli fjárlagafrumvarpa 2026 og 2027. Lækkunin til Betri samgangna er 2 milljarðar en síðan er líka verið að hagræða þegar kemur að viðhaldi og nýframkvæmdum. Þetta gerist þremur mánuðum eftir að Alþingi samþykkti samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040. Hver er nettóbreytingin á fjárveitingu til vegakerfisins sjálfs milli ára þegar tímabundin framlög eru tekin úr myndinni og hvaða verkefni samgönguáætlunarinnar, sem er nýsamþykkt, frestast? Hvernig þróast viðhaldsskuld vegakerfisins árið 2007 miðað við þessar fjárveitingar?