158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[12:13]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Varðandi hagræðingu. Það er að sjálfsögðu alltaf verið að hagræða í kerfinu og hagræðingin hefur engin áhrif á framkvæmdir. Sóknaráætlanir og atvinnuráðgjafar eru ekki raunveruleg hækkun. Það sem gerðist í fyrra var að fjárlaganefnd bætti í og sú viðbót er ekki inni í núverandi fjárlögum. Ég vonast svo sannarlega til þess að fjárlaganefnd horfi til þess í meðferð málsins. Það hefur engin áhrif á nýframkvæmdir hvað þetta varðar. Varðandi farsældina þá er þetta í fyrsta lagi ekki á mínu málefnasviði, þetta er einungis varðandi útgreiðslu gegnum jöfnunarsjóð. Auðvitað þarf að ræða betur við sveitarfélögin um framhald verkefnisins og það sem hefur lofað góðu en að sjálfsögðu er þetta líka krafa til sveitarfélaganna um hagræðingu og aðhald varðandi þessa 1,1 milljarða sem er verið að minnka um. Ég veit ekki til þess að verið sé að falla frá neinum nýframkvæmdum í þessu aðhaldi, svo það liggi skýrt fyrir. Það er ekki verið að falla frá neinu. Hvort það sé einhver tilfærsla í framkvæmdatöflum og tíma og annað slíkt er ég ekki með upplýsingar um núna.