158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[12:14]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir sína yfirferð hér og láta hann hreinlega vita að ég styð hann auðvitað í því að taka til við að draga úr innviðaskuldinni og ég held að við höfum alveg talað ágætlega um það á síðasta þingi að það skipti gríðarlegu máli að við myndum halda sjó í þeim efnum. Þess vegna verð ég að viðurkenna að ég varð fyrir örlitlum vonbrigðum þegar ég sá þessa áætlun hér. Ég gerði ráð fyrir að við myndum eftir sem áður bæta í varðandi samgöngurnar því að það er alveg innstæða fyrir því og ég þarf nú ekki að minna ráðherrann á að það var farið í ótrúlegustu skattahækkanir fyrir síðustu fjárlagagerð, m.a. í veiðigjöldum, vörugjöldum og kílómetragjaldi og maður gerði ráð fyrir því að það myndi endurspeglast í þessari áætlun og einnig það sem verið er að leggja til núna, þ.e. hækkun á kílómetragjaldinu. Það eru vonbrigði. En það er mikilvægt að við höldum áfram að reyna að ná niður þessari innviðaskuld.

Mig langar til þess að forvitnast af því að ég sé hvergi Göng og brú þegar skoðuð eru helstu verkefni og framkvæmdir. Ég velti því fyrir mér hvort því félagi hafi ekki verið ætlað neitt hlutverk á næsta ári. Ég gerði eiginlega ráð fyrir því af því að við horfum t.d. á uppbyggingu á Kjalarnesi og það var m.a. það sem var inni í samgönguáætlun, sem dæmi reyndar. En ég gerði ráð fyrir að Göng og brú yrði hér inni og ég velti fyrir mér: Hvernig stendur á því að það er ekki gert ráð fyrir því í neinu af þeim verkefnum sem hér eru?