fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Varðandi kílómetragjaldið, sem ég kom kannski ekki nógu vel inn á áðan, þá kemur kílómetragjald á landsbyggðinni ekki verr við landsbyggðina en bensíngjaldið. Bifreiðar úti á landi eyða meiru, það er t.d. meira verið að keyra á stærri bílum, Land Crusier og slíkum bílum, sem eyða meira bensíni og borga meira bensíngjald. Þarna er einungis verið að miða við kílómetrafjöldann þannig að það að halda því fram að þetta sé landsbyggðarskattur eins og kom fram hérna áðan er einfaldlega rangt. Það þarf að skoða þetta nánar hvað það varðar.
Varðandi Göng og brú og helstu verkefni þá á það að vera sjálfstætt félag, svokallað C-félag. Það er ákvæði í 6. gr. um hlutafjáraukningu. Það kemur fram í greinargerðinni á bls. 63, minnir mig, ég var að lesa það upp hérna áðan, að það er gert ráð fyrir því að ríkið muni setja fé í formi reiðufjár eða annarra tekjuberandi eigna inn í félagið svo það geti farið í þau verkefni sem það mun fara í. Það er sjálfstætt félag. Það er mjög mikilvægt. Það tekur sínar eigin ákvarðanir og þá er mjög mikilvægt að við séum ekki, Alþingi Íslendinga eða ríkisvaldið, að skipa því fyrir. Ég mun hins vegar gera samninga við félagið eða ég geri ráð fyrir að gera samninga við félagið varðandi flutning á Sundabraut yfir til félagsins og líka Fljótagöng. Sá samningur getur kveðið á um að þeir sjái um fjármögnun á Fljótagöngum, verkefninu, og hann getur líka kveðið á um það að Vegagerðin sjái um útboð og verkkaupaeftirlit en svo komi fjármögnun frá — þetta verður fjármögnunarfélag hvað varðar Fljótagöngin. Þannig mun þetta virka. Það er það sama með Sundabraut. Hún mun fara inn í félagið á ákveðnum tímapunkti. Sá tímapunktur getur verið hvenær sem er.
Ég skora á hv. þingmann og allan þingheim að koma á markaðsdaginn sem verður í næstu viku þar sem við kynnum félagið fyrir fjárfestum sem er gríðarlega mikilvægt. Það væri óeðlilegt að við værum hér að kveða á um verkefni Ganga og brúar sem er sjálfstætt félag. Við bindum miklar vonir við það. Við erum að nota sveigjanleika einkaframtaksins í því félagi. Ég hef lesið skýrslur um það, t.d. frá Svíþjóð, þegar þeir skoða Nye Veier í Noregi — það er það sem er fyrst og fremst verið að horfa á. Þá eru þeir ekki bundnir af fjárlögum, geta skuldbundið sig til lengri tíma utan fjárlaga.