fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og ætla kannski ekki að munnhöggvast við hann um þetta en ég skil það alla vega þannig að Göng og brú hafi þá frjálsræði til að semja við hvern sem það félag vill og það sé þá ekki sjálfgefið að Vegagerðin sinni þeim verkefnum.
Aðeins hérna í lokin varðandi jöfnunarsjóðinn, hæstv. ráðherra benti hér réttilega á að það hefði verið tekið upp nýtt módel hjá jöfnunarsjóðnum eða reiknilíkan og það hefði reynst vel. Mig langar til að heyra aðeins ofan í ráðherrann: Á hverju byggir hann þessar upplýsingar um að reiknilíkanið hafi reynst vel? Er það af samtölum við sveitarfélögin eða var gert einhvers konar gæðamat á þessu? Ég vil alla vega nefna það að ég veit a.m.k. um eitt sveitarfélag sem fer mjög illa út úr reiknilíkaninu eins og það birtist núna og er verulega frábrugðið því sem áætlað var, en það er Borgarbyggð. Ég vænti þess að Borgarbyggð hafi verið í einhverjum samtölum m.a. við ráðherrann út af því.