fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir ágætar umræður hér í dag. Engu að síður er það nú þannig að þegar maður situr í þingsal og hlustar á hæstv. ráðherra þá vakna oft fleiri spurningar en maður kom með hér inn í salinn til að byrja með. Mig langar að byrja á að spyrja hæstv. ráðherra út í hið ágæta innviðafélag Göng og brú og fjármögnunina. Jú, það er 6. gr. heimild í lögum til að setja hlutafé inn. Það er hins vegar ekkert fjármagn í fjárlögunum eyrnamerkt þessum verkefnum, ekki ein króna. Það hefur alveg verið ljóst og var algerlega ljóst í umræðunni hér um Fljótagöng og innviðafélagið að félag um Fljótagöng getur ekki starfað á markaðslegum forsendum. Til að þau göng geti orðið að veruleika þarf að koma til ríkisaðstoð. Hvernig sér hæstv. ráðherra þetta fyrir sér? Hér erum við að tala um hallalaus fjárlög með 5 milljarða kr. afgangi, 4,7. Fljótagöng, ef það á að fara í þau, myndu alltaf koma inn á A1-hluta ríkissjóðs vegna þess að félagið er þeim megin í lífinu, það getur ekki starfað á markaðslegum forsendum, það eru ekki markaðslegar forsendur fyrir því að þetta félag starfi öðruvísi en með ríkisstuðningi. Hvernig sér hæstv. ráðherra þetta raungerast? Erum við að tala hér um fjárauka þar sem fjármagnið mun koma inn?
Það sem er enn þá ótrúlegra hérna og ég vildi fá að spyrja um er að í fjárlögunum (Forseti hringir.) kemur fram að undirbúningur og framkvæmd við Fljótagöng séu innan ramma. Ég spyr bara hæstv. ráðherra: Innan hvaða ramma (Forseti hringir.) þar sem það er ekki ein króna í verkefnið í fjárlögunum og það er sérstaklega stjörnumerkt í samgönguáætlun sem án fjármögnunar?