fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnirnar varðandi Fljótagöng. Ég hvet hann eindregið til að lesa það sem stendur í greinargerð fjárlagafrumvarpsins á bls. 163. Ég las upp úr því hér áðan og það er óþarfi að endurtaka það. Það segir í 6. gr. að það sé verið að koma með eigið fé inn í félagið. Það getur verið, eins og kemur fram, í formi reiðufjár sem nemur hluta af stofnkostnaði verkefnisins, þ.e. Fljótagangaverkefnisins, eða annarra tekjuberandi eigna. Það er þannig sem þetta verður unnið. Hins vegar er undirbúningskostnaður innan ramma, undirbúningskostnaður við göngin. Framkvæmdakostnaður er svo fjármagnaður sérstaklega eins og kemur fram í frumvarpinu. Þetta mun byggjast á því að innviðaráðuneytið og félagið semja um framkvæmdina, umgjörðina o.s.frv. Fjármálaráðuneytið mun sjá til þess að fjárveiting verði veitt sem rætt er um í þessari umræddu 6. gr. heimild. Það getur þá tekið eigið fé, notað reiðufé, þá borgar það verktökum, fyrir vinnuna, eða tekur lán út eignina sem veð o.s.frv. Framkvæmdakostnaður er fjármagnaður sérstaklega eins og kemur fram í frumvarpi til fjárlaga. Í ár eru það hjá okkur 150 milljónir í undirbúning framkvæmda. Eins og kemur fram í lögum um innviðafélag þá mun innviðaráðherra semja við félagið um verkefni. Svo mun fjármálaráðherra í samráði við innviðaráðherra færa þegar byggðar eignir þar inn. Þetta er í 4. gr. í lögum um innviðafélag.