fjárlög 2027.
Frú forseti. Það sem ég er að segja er að mér finnst ekki endilega vera góður bragur á því að ætla að taka einn anga kerfisins fyrir og rýna hann eingöngu. Það voru settar ákveðnar reglur um hvernig kerfið skyldi vinna í eftirmálum fjármálahrunsins. Það féllu dómar, í öðrum málum voru sýknur, önnur mál hafa farið fyrir Mannréttindadómstólinn. Ég á við að verði farið í þetta skulum við skoða ögn stærri mynd en að ætla eingöngu að rýna einstakar embættisfærslur embættismanna. Af því að hann nefnir forystu dómsmálaráðherra í þessum efnum: Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur boðað einhverja slíka tillögu eða jafnvel þegar lagt hana fram. Ég held að þingmaðurinn ætti að styðja þá tillögu og vera með henni í því. Ég er ekki með neitt slíkt mál á þingmálaskránni núna. En ég held, alveg eins og talað er um að það hafi ríkt ákveðið andrúmsloft á þessum árum, að þá verði lærdómurinn líka að vera sá að við séum með ís í maga þegar við gerum þetta upp og miðum út frá gögnum og staðreyndum en ekki tilfinningum.