fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir að fara yfir áherslumál sín í fjárlagafrumvarpinu og varpa ljósi á nokkur mikilvæg atriði þar. Ég horfi mjög björtum augum á fjárlög þessa málaflokks á næsta ári. Það er ljóst að markmið ríkisstjórnarinnar um að verja þessi grundvallaratriði samfélags okkar, öryggi almennings og réttarkerfið í heild sinni, skína í gegnum þetta fjárlagafrumvarp. Þó að aðhaldskröfur séu víða eru þær talsvert minni í þessum málaflokki. Ráðherra hefur líka boðað frumvörp í vetur sem styðja við þetta og kannski sérstaklega má nefna þar fyrirhugaðar sameiningar lögregluembætta. Lögreglan hefur sýnt það í gegnum tíðina að þegar eru stór verkefni þá stendur hún saman og leysir málin. Ég held að það séu góð skilaboð inn í vinnuna sem við eigum fram undan í vetur í allsherjar- og menntamálanefnd að horfa á hvernig lögreglan getur orðið enn þá sterkari saman.
Mig langar að beina ljósinu í þessu samtali hér við hæstv. ráðherra að fangelsismálum og það voru frumvörp á síðasta ári sem snertu stöðuna í fangelsum. Það er ekkert slíkt frumvarp og kannski ekki nein þörf á því í vetur. Aftur á móti er skýrt í fjárlagafrumvarpinu að fangelsismálin eru þar ofarlega á blaði og mikilvægt að taka þau fyrir. Mig langar aðeins að ræða hvernig við megum búast við að staðan verði í fangelsismálum, varðandi nýbyggingar, breytingar og lagfæringar á húsnæði fangelsanna. Hvernig sjáum við það fyrir okkur í lok ársins? Og aftur langar mig að leggja áherslu á mikilvægi þess að við horfum alltaf á kerfið í heild sinni, allt frá störfum lögreglu, í rannsóknir, saksóknir, dómstólanna og síðan til fullnustu refsinga, að þetta sé allt saman eitt heildarferli. En ég spyr sérstaklega í ljósi umræðu á síðasta þingi um stöðu fangelsismála: Hvernig sér ráðherra fyrir sér stöðuna í lok næsta árs?