fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni og formanni allsherjar- og menntamálanefndar kærlega fyrir spurninguna. Mér hefur sýnst sem pólitískur áhugi á þinginu öllu á fangelsismálum sé vaxandi, sem er jákvætt því að þetta er sannarlega málaflokkur sem setið hefur eftir hvað varðar fjárfestingar á liðnum árum. Það er gleðilegt að geta sagt frá því núna að í ár og vonandi á allra næstu vikum förum við af stað með annars vegar upphaf Stóra-Hrauns en líka stækkun á Sogni. Þar erum við að horfa til þess að við bætum við 15 nýjum fangelsisplássum. Þegar Stóra-Hraun verður tilbúið, og við erum búin að fullfjármagna 1. áfanga þá þegar, en þegar fangelsið verður tilbúið, sem verður ekki fyrr en 2031, verða þar 128 rými. Það er nú kannski kosturinn við að búa í fámennu landi að það munar mjög mikið um hvert aukapláss. Það er búið, eins og ég segi, að skrifa undir verksamning við verktaka varðandi Stóra-Hraun sem hefur þegar hafið undirbúning framkvæmda. Alútboð fyrir byggingarnar sjálfar fer fram núna í haust þannig að það er komin veruleg hreyfing á þetta mál. Það er vandi á Íslandi og á hinum Norðurlöndunum líka, veit ég, að breytt samfélagsgerð, í okkar tilviki mikil fólksfjölgun og þyngri dómar leggst allt saman og skapar vandamál inni í fangelsunum og þess vegna er svo mikilvægt að við fáum þetta fyrsta öryggisfangelsi. Við höfum verið að horfa upp á það um margra ára bil að refsingar hafa verið að fyrnast og það er mín von að með þessum aðgerðum sem við erum að stíga núna, og jafnframt vegna þess að verið er að nálgast fangelsismálin með heildstæðum hætti, séum við að komast á betri stað. En þetta mun taka tíma.