158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[12:56]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir greinargóð svör og góðar og mikilvægar upplýsingar þegar kemur að fangelsismálum. Ég vil hvetja hæstv. ráðherra til dáða í þessum málaflokki, ekki eingöngu þegar kemur að uppbyggingu húsnæðis heldur líka þegar við horfum til endurhæfingar og möguleika þeirra sem sitja í fangelsum og njóta þjónustu refsikerfisins. Við höfum það í huga að vinna vel að því, bæði þegar kemur að aðstöðumálum og ekki síður að andlegri líðan og öðru varðandi endurhæfingu og möguleika á að komast aftur út í samfélagið.

Mig langar bara örlítið að velta upp við ráðherrann almannavörnum. Það kemur ráðherra væntanlega ekkert á óvart að ég hafi áhuga á þeim málaflokki. Hún nefndi uppbyggingu í Skógarhlíð. Það er mikilvægt að almannavarnir komist aftur í samvinnuna sem þar var og mig langar líka að nefna varðandi frumvarpið sem hefur verið boðað í vetur, almannavarnafrumvarpið, hvort hún sjái einhverjar hugsanlegar breytingar á því varðandi sameiningu lögregluembættanna. (Forseti hringir.) Erum við að horfa á eitthvað kerfislegt tengt þeim málum?