158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[13:03]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég hef áhuga á að forvitnast aðeins nánar um viðhorf hennar þess efnis að hér beri ekki að stofna íslenskan her. Auðvitað er á vissum stigum nánast stigsmunur frekar en eðlismunur á því að vera með Landhelgisgæslu eða öfluga innviði á öllum þessum öryggismálasviðum og vera síðan með eiginlegan her þó að það sé ákveðinn eðlismunur líka. En þessi spurning, þegar menn taka öryggis- og varnarmálin svona alvarlega og hafa svona slíkar áhyggjur af því, þá veltir maður fyrir sér hvort það hafi aldrei komið til umræðu innan ríkisstjórnar eða t.d. inni í þeim ráðuneytum þar sem þessi mál eru til umfjöllunar, að fara í slíkt og þá sem sagt hvers vegna ekki. Af hvaða ástæðum telur hæstv. ráðherra ekki hyggilegt að hér sé neinn vísir að eiginlegri herdeild? Er það af hugmyndafræðilegum prinsippástæðum, ef svo má segja? Er það vegna kostnaðarins? Auðvitað myndi kostnaður við slíkt hlaupa á tugum milljarða. Hvað er það? Hvaða hugmyndafræðilega afstaða er það sem býr að baki? Ég spyr af einlægri forvitni, þótt við áttum okkur öll á því að fyrst og fremst sé forvörnin okkar hérna á Íslandi einmitt áfallaþolið samfélag og sterkir innviðir. Það er okkar stóra öryggismál. (Forseti hringir.) En hitt er spurning sem vaknar hjá fólki á þessum síðustu og verstu tímum, ekki síst þegar menn gera mjög mikið úr breyttum heimi í öryggismálum.