158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[13:05]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég verð svo forvitin þegar ég hlusta á hv. þingmann að mig langar til að spyrja hann hvort hann sé áhugamaður um að stofna íslenskan her. En ég get svarað því að það hefur ekki farið fram umræða í ríkisstjórn um að stofna íslenskan her. Ég get svarað fyrir mitt leyti að ég er kannski ekki fyrst kvenna til að mæta í mótmælagöngu gegn NATO eða neitt slíkt. Ég er mjög stolt af því að Ísland tilheyri NATO. Ég sé bara ekki fyrir mér að á Íslandi séum við að fara að setja fjárfestingu í það, að við höfum mannafla í það og að það sé skynsemi í því að stofna íslenskan her. Ég get hins vegar nefnt að ég merki á Norðurlöndunum, ég nefni t.d. Svía, þeir eru með sérstakt ráðuneyti almannavarna, að þar er mikil áhersla á hinar borgaralegu varnir. Þar er verið að horfa til þess að hin breytta heimsmynd sýnir okkur líka hvað breytt stríð þýðir. Drónar yfir Kastrup-flugvelli, engin eiginleg árás og enginn mannskaði en þetta lamar samgöngur í heilu landi. Allt viðbragð okkar þarf líka að taka mið af því að nútímaárásarstríð, (Forseti hringir.) nútímaógn og nútímaárás lítur ekki út eins og sú sem við þekkjum í sögulegu samhengi og þess vegna þarf viðbragð líka að taka mið af því.