158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[13:12]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Í framhaldi af sjónarmiðum þingmannsins þá er það þannig að þó að þetta sé ekki undir hatti dómsmálaráðuneytisins þá sést það í fjárlagafrumvarpinu núna að það er varið 543 milljónum til íslenskukennslu. Það finnst mér vera mjög jákvætt. Svo eru aðrir þættir. Við getum skoðað t.d. hver munurinn á íþróttaþátttöku íslenskra barna og barna sem eru af erlendum uppruna er. Það er mjög auðvelt að sjá hvar það er sem aðstöðumunurinn brýst út og ég held að leiðarstef í inngildingu, hvort sem við erum að tala um fullorðna eða börn sem hingað koma, sé einmitt tungumálið og íslenskukennslan. Þar sem ég ætla ekki að vera í inngildingu er varðandi glæpamenn sem koma til landsins. Það er ekki markmið mitt að inngilda glæpamenn inn í samfélagið að lokinni afplánun og þess vegna kom líka eitt af þeim frumvörpum sem við fórum í, með heimildir til að afturkalla alþjóðlega vernd fyrir glæpamenn og síðan brottvísun þeirra sem hafa hlotið dóm hér á landi. Þetta er líka að skapa rými í fangelsum landsins þá þegar.