158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[13:13]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir hennar svör og hennar ræðu hér í upphafi umræðunnar. Það sem mig langar að beina athygli og sjónum að í þetta skipti eru sýslumennirnir. Það væri ágætt að fá smá útskýringar varðandi þá. Nú sér maður í fjárlagafrumvarpinu að heildarfjárheimild til málaflokksins lækkar um 206 millj. kr. frá fjárlögunum, að frátöldum launa- og verðlagsbreytingum. En það er þessi aðhaldskrafa upp á sömu upphæð upp á krónu, sem er 206 millj. kr., sem mig langar aðeins að ræða hér við hæstv. ráðherra.

Ástæðan fyrir því að ég er að spyrja er sú að nú liggur fyrir að við erum að fara í breytingar á skipan sýslumanna um áramót. Einhvern veginn hef ég trú á því, miðað við mín kynni af sameiningum stofnana, að þetta sé kostnaðarsamt á fyrsta ári. Þetta er kostnaðarsamt þó að hægt sé að reikna sig inn í einhvern sparnað til framtíðar. Ef ég man umræðuna rétt var það nú þannig að sá sparnaður sem átti að nást með þessari sameiningu átti að renna til sýslumannsembættanna. Þetta var ekki gert í hagræðingarskyni þannig séð heldur átti að ná betri stýringu á því fjármagni sem inni í kerfinu er. Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra hvernig hún sjái fyrir sér, miðað við þann niðurskurð og þá aðhaldskröfu sem er á sýslumannsembættunum í þessu fjárlagafrumvarpi, að það muni í raun og veru ganga og reynast og hvort inni í fjárlögunum (Forseti hringir.) sé búið að gera ráð fyrir þeim kostnaði sem mun falla til út af sameiningu stofnana.