fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni kærlega fyrir fyrirspurnina. Varðandi sýslumenn, af því að ég nefndi það nú með lögreglu, ákæruvald og dómstóla að þessar einingar eru sérstaklega varðar fyrir aðhaldi, þá á það ekki við um sýslumenn en það aðhald sem birtist hér tengist í sjálfu sér ekki sameiningunni. Heildarfjárheimild málaflokksins eru, eins og fram kom, um 4,2 milljarðar kr. og lækkar um tæpar 207 millj. kr. Þannig að aðhaldskrafan er um 4,8%. Aðhald vegna fækkunar stöðugilda er um 115 millj. kr. Þar minni ég á það sem sett var inn í frumvarpið að um 65% starfa eru merkt landsbyggðinni. Þannig að ég sé fyrir mér að komi til fækkunar stöðugilda verði það ekki þar. Allt er þetta nú í vinnslu en eins og ég segi er þetta aðhald ekki vegna sameiningarinnar og það er alveg rétt sem þingmaðurinn nefnir að sameiningarferli og sameiningarvinna kostar alltaf aðeins í byrjun en það er verið að ræða um 1% fækkun stöðugilda hjá ríkinu. Hlutdeild sýslumanna í því sambandi er kannski um sjö stöðugildi eða svo. Þegar við horfum síðan til þess að þegar lögin taka gildi þá erum við að fækka sýslumönnunum sjálfum og þegar litið er til þessa 1%, sýslumenn farnir utan sýslumanns Íslands sem eftir starfar, þá hefur þetta ekki áhrif á þau störf sem þarna eru. Þetta eru opinber innkaup og sértækt aðhald í tengslum við önnur atriði. En það er auðvitað alveg áskorun sem þingmaðurinn nefnir að sameiningar kosti í byrjun.