fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svörin. Það er alveg rétt og ég svo sem gerði mér grein fyrir því að sú aðhaldskrafa sem birtist í fjárlögunum er ekki tengd þessum sameiningum, hefur ekkert með þær að gera. Þetta er bara aðhaldskrafan sem stjórnvöld leggja á sínar undirstofnanir og svo erum við með aðila eins og lögregluna og fleiri, Landhelgisgæsluna, heilbrigðisstarfsmenn, sem eru undanþegnir þessari aðhaldskröfu.
En spurningin mín er kannski bara þessi: Ég sé það ekki, hvorki í textanum um sýslumenn í frumvarpinu né finn neinar tölur um það, en er gert ráð fyrir fjármagni á fjárlögum sérstaklega eyrnamerktu þessari innleiðingu nýja kerfisins? Er gert ráð fyrir einhverju fjármagni sérstaklega til þess að standa straum af þeim kostnaði sem mun falla til vegna sameiningarinnar, sér í lagi í ljósi orða hæstv. ráðherra um aðhaldskröfuna eða fækkun ríkisstarfsmanna, þessara sjö? (Forseti hringir.) Ef það er hagræðingin sem menn ætla að ná út úr því, þá er ljóst að það fjármagn nýtist ekki í sameininguna. Það kemur annars staðar fram. (Forseti hringir.) Ég vildi aðeins fá upplýsingar um þetta á einni mínútu. Ég veit að það er lítill tími, virðulegur forseti.