158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[13:33]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Hér í seinni innkomu minni langar mig að spyrja sérstaklega um mjög afmarkaðan þátt, þ.e. með hvaða hætti hæstv. ráðherra sér fyrir sér þróun á starfsaðstæðum sérsveitarinnar á þessu ári og hvort hún sjái einhver frekari áform til lengri tíma litið; ég spyr samt sérstaklega um það fjárlagaár sem nú liggur fyrir, árið 2027. Eru einhverjar breytingar þar sem ráðherrann leggur áherslu á, breytingar sem eru kannski ekki sýnilegar með beinum hætti í fjárlagafrumvarpinu?