fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Í fyrra var sérsveitarmönnum fjölgað um tvo. Tveir lögreglumenn af hinum 50, hin varanlega aukning, fóru til sérsveitar. Ég er afdráttarlaust þeirrar skoðunar að hér þurfi að gera betur og að íslensk sérsveit, gamla góða víkingasveitin, þurfi að vera stærri. Hún þarf að verða stærri og hún þarf að vera fjölmennari. Þetta er einn þeirra þátta innan löggæslunnar sem mér finnst blasa við að heyri undir það að efla viðbragðsgetu okkar, þ.e. að við séum þar að horfa á sérsveit, greiningardeild og almannavarnir, þessar stoðir sem í dag tilheyra ríkislögreglustjóra, fremur en að við séum að blanda almennri löggæslu í málið. Það er ekki pláss fyrir viðbætur eins og fjárlagafrumvarpið lítur út núna en dómsmálaráðherra þiggur allan stuðning þingsins þannig að við getum gert betur til lengri tíma litið.