158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[13:35]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langar í síðari atrennu við hæstv. dómsmálaráðherra að spyrja aðeins út í löggæsluna. Mér rennur blóðið til skyldunnar þar. Ef maður skoðar fjárlagafrumvarpið þá er hækkun á milli ára í löggæslunni örlítil, milljarður. Ég vil ekki gera lítið úr því en mér sýnist samt, ef maður skoðar sömu töflu, að þetta sé undir þeim fjárheimildum sem voru árið 2025. Af hverju er ég að velta þessu fyrir mér? Jú, vegna þess að hæstv. dómsmálaráðherra boðaði fjölgun lögreglumanna, 50 stöðugildi, sem mér skilst, og hef ekki staðfestingu fyrir, að þau séu ekki öll komin til starfa eða að við höfum ekki náð að fylla þessi 50 stöðugildi. Hæstv. dómsmálaráðherra leiðréttir mig ef það er rangt. En nú heyri ég mjög mikið frá mínum gömlu félögum víðs vegar um landið og á höfuðborgarsvæðinu að það vanti sárlega lögreglumenn. Verkefnin hafa breyst, eru orðin erfiðari og flóknari, og spurningarnar eru því þessar: Hver er staðan á þessum 50 stöðugildum? Er fjármagn fyrir þeim inni í frumvarpinu 2027 og hvaða leiðir er dómsmálaráðherra að skoða varðandi enn frekari fjölgun lögreglumanna? Eins langar mig að spyrja út í fjármögnun á sérsveit ríkislögreglustjóra sem mér skilst að sé komin í miklar kröggur og að þeir séu orðnir verulega aðþrengdir þegar kemur að fjárveitingu sem er farið að hamla þeirra starfsemi, (Forseti hringir.) sem er mjög vond þróun.