fjárlög 2027.
Frú forseti. Hvað sögðum við í Samfylkingunni fyrir síðustu alþingiskosningar? Við sögðumst ætla að negla niður vexti með því að hætta að reka ríkið á yfirdrætti. Þetta er sleggjan. Þetta er meðalið sem hagkerfið okkar þarf eftir áratug af lausatökum. Bara sú vaxtalækkun sem hefur orðið frá því að við vorum í kosningabaráttu árið 2024 hefur skilað sér í því að heimili með óverðtryggð lán spara tugi þúsunda í afborganir á hverjum mánuði, og þessi þróun þarf að halda áfram. Þetta skiptir máli og fyrir ríkissjóð skiptir máli að binda enda á hallareksturinn og skuldasöfnunina þannig að við getum notað peningana okkar í að styrkja innviðina og velferðina frekar en í uppsprengdan vaxtakostnað. Þetta er verkefnið. Núverandi ríkisstjórn mun ekki beygja sig, hún mun ekki bogna frammi fyrir óraunhæfum kröfum um stóraukin útgjöld og minni tekjur. Það kemur ekki til greina. Það þarf að koma röð og reglu á ríkisreksturinn og það er það sem við höfum verið að gera, það sem við erum að gera með þessum fjárlögum. Stóra núllið er ekki vegna þess að við séum á valdi einhverra trúarbragða um að það megi aldrei vera halli á rekstri ríkisins. Það eru aðstæðurnar sem skipta máli hverju sinni og þegar við höfum árum saman horft upp á verðbólgu langt umfram markmið og einhverja hæstu seðlabankavexti í okkar heimshluta, þá þarf að taka til. Þá þarf að senda afgerandi skilaboð og taka á sjúkleikanum í íslensku efnahagslífi. Meðalið kann að vera vont á bragðið þegar við erum að taka það inn en það mun lækna meinið sem verið hefur allt of lengi á íslensku hagkerfi, sem hefur bitnað á veski heimilanna og bókhaldi fyrirtækjanna með allt of háum íþyngjandi vöxtum.
Hvernig eyðum við hallanum? Hvernig gerum við þetta? Við byrjuðum á sjálfum okkur í fyrsta lagi. Við byrjuðum á því að fækka ráðuneytum, fækka ríkisstofnunum, fækka verkefnum, setja þak á launahækkanir æðstu embættismanna og þjóðkjörinna fulltrúa sem gildir til næstu ára, draga úr sporslum þar sem forsætisráðherra fór fremst í flokki eins og menn muna. Og hvert erum við komin núna? Núna erum við með fjárlög sem fela í sér mestu aðhaldsaðgerðir á útgjaldahlið ríkisins í meira en tíu ár, umfangsmestu hagræðingaraðgerðir sem sést hafa á þessum áratug. Við erum núna loksins að ná útgjöldunum niður í 30% af vergri landsframleiðslu í lægsta hlutfall sem sést hefur á þessum áratug, 44 milljarða aðhald, 44 milljarða aðhaldsráðstafanir, sem eru tíundaðar rækilega í 5. kafla fjárlagafrumvarpsins og auðvitað í umfjöllun um hvert málefnasvið fyrir sig. Við erum því að sækja u.þ.b. 2 kr. með aðhaldsaðgerðum í útgjöldum fyrir hverja 1 kr. sem við sækjum með aðgerðum á tekjuhlið. Á tekjuhliðinni munar mestu um bankaskattinn, enda hefur komið á daginn að lækkun bankaskattsins skilaði sér ekki til neytenda og fyrirtækja með þeim hætti sem lofað var þegar skatturinn var lækkaður þannig að sú lækkun gengur að hluta til til baka, ekki að öllu leyti en að hluta til.
Í öðru lagi erum við að afnema sérstakan skattafslátt fyrir baðlón. Það er eðlileg breyting á virðisaukaskattskerfinu. Ég blæs á hvers kyns tal um að þetta sé landsbyggðarskattur. Mikill meiri hluti teknanna mun koma frá suðvesturhorninu, frá nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Í þriðja lagi erum við vissulega að hækka kílómetragjaldið en við hækkuðum það helmingi minna en gert var ráð fyrir, bæði í síðustu fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar og í fjármálaáætlun síðustu ríkisstjórnar. Þar var gert ráð fyrir miklu umfangsmeiri gjaldtöku gagnvart ökumönnum í landinu sem núverandi ríkisstjórn hefur skrúfað til baka. Þetta er í raun skattalækkun miðað við þá fjármálaáætlun sem áður var unnið eftir og ég held að við ættum að fagna því þvert á flokka hér í þessum sal.
Um leið og við lokum loksins fjárlagagatinu erum við að halda áfram að styrkja Ísland. Við erum að endurheimta virðingu fólks á efri árum með sterkara heilbrigðiskerfi, fleiri hjúkrunarrýmum og fleiri stöðugildum heimilislækna. Við erum að lækka orkuverð í dreifbýli, ráðast í kerfisbreytingar á húsnæðismarkaði og styðja fleiri fyrstu kaupendur. Við erum á metframkvæmdaári í orkugeiranum og í samgöngumálum. Við höfum stóraukið framlög til viðhalds vega, náð stjórn á útlendingamálum, tekið málefni barna með fjölþættan vanda föstum tökum og stöðvað kjaragliðnun lífeyris og launa. Þetta eru breytingar sem bæta daglegt líf fólks um land allt á hverjum einasta degi og styrkja Ísland.
Hallalaus fjárlög, stóra svarta núllið, munu styrkja Ísland og styðja við markmið okkar um að endurheimta efnahagslegan stöðugleika á Íslandi.