158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:09]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Þessi svör hæstv. ráðherra ganga ekki alveg upp. Röksemdir fyrir náttúrupassanum eru þær að það sé einhvern veginn verið að greiða fyrir aðgang að náttúru landsins vegna þess að það er álag og menn þurfa að setja bílastæði, göngustíga, salerni og annað slíkt. Það er búið að hækka á nokkrum árum þessi gjöld um 2 milljarða á ári þannig að miðað við 2027 eru þetta 2,2 milljarðar til að sinna nákvæmlega þessu og ef menn ætla að setja þennan náttúrupassa, sem er einstaklega vond hugmynd, þá hljóta menn að taka þessa gjaldtöku niður eða taka hana af. En það sem ríkisstjórnin segir er: Við ætlum að efla innviðina á þessum viðkvæmu svæðum og erum með tvenns konar gjaldheimtu, sérstaka sem hefur komið okkur í 2,2 milljarða miðað við þetta frumvarp og setja síðan 6 milljarða í viðbót.