fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Það er alveg rétt að þessi gjöld hafa verið að hækka, bílastæðagjöldin og gjöld vegna þjónustu sem fer fram á þessum svæðum. Hvort það þarf að dreifa þessu með einhverjum öðrum hætti niður á útgjalda- og tekjuhlið eftir að náttúru- og innviðagjald tekur gildi þekki ég ekki. Ég get alla vega fullvissað hv. þingmann um að það stendur ekki til að rukka bæði bílastæðagjald og náttúru- og innviðapassa fyrir friðlýst svæði og fyrir þjóðgarðana okkar. Þetta verður að einhverju leyti tvískipt kerfi þar sem við erum að byrja á ákveðnum náttúruperlum og fikra okkur áfram.