fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir prýðisgóða ræðu og yfirferð um stöðu mála. Eins og hæstv. ráðherra segir erum við að hætta að greiða yfirdráttinn. Það er rándýrt sport að vera í stöðugum yfirdrætti. Við þekkjum það úr heimilisrekstrinum að það skiptir miklu máli að greiða niður skuldir og koma okkur yfir núllið þannig að við getum farið að byggja undir stöðugleika og fyrirsjáanleika til lengri tíma. Það er sannarlega besta kjarabótin sem við getum gefið heimilum og fyrirtækjum í landinu, þ.e. að ná fyrirsjáanleika og stöðugleika.
En mig langar aðeins að nýta tímann sem ég hef hér í mínu fyrra andsvari til að spyrja hæstv. ráðherra aðeins út í endurheimt vistkerfa og fjármagn því tengt. Mig langar að vita aðeins um það hver áformin eru. Hvað ætla stjórnvöld að gera þegar kemur að því að endurheimta vistkerfi? Hver er ávinningurinn hvað það varðar og hvernig er slíkur ávinningur mældur? Það væri áhugavert að vita það því að í loftslagsumræðunni eru oft mjög óáþreifanlegir mælikvarðar og við sjáum kannski ávinninginn ekki strax. Það er því spurning hverjir fjárhagslegu hvatarnir eru þegar kemur að því að tryggja að við setjum aukinn kraft í loftslagsmálin til að ná betri tökum á þeim. Það er kannski það sem ég væri forvitin að fá að heyra í fyrsta kasti.