158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:21]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína fyrirspurn. Hv. þingmaður byrjaði á að tala um ETS2-kerfið og það er hárrétt að innleiðing þess er á þingmálaskrá núna vegna þessa löggjafarþings. Í því sambandi vil ég greina frá því að við erum að vinna að útfærslu sem felur í sér að aðilar undir ETS2-kerfinu fái undanþágur frá heimildakaupum undir kerfinu á þeim forsendum að hér á landi sé nægilega hátt kolefnisgjald nú þegar. Þetta þýðir þá að innleiðing kerfisins á Íslandi hefði fyrst og fremst í för með sér einhvern kostnað en ekki gjöld með beinum hætti heldur snýst það um umsýslu, skráningu og annað slíkt.

Hitt vil ég segja að ETS-kerfið er hluti af loftslagsgerðum EES-samningsins. Það er langt síðan það var tekið inn í þennan samning og hér hafa trekk í trekk verið samþykktar í þessum sal breytingar á ETS-lögunum til að styðja við þátttöku Íslands í því samstarfi. Það kemur ekki til greina af minni hálfu eða þessarar ríkisstjórnar að gera neitt sem stefnir í EES-samningnum í voða. Þegar talað er um að ganga úr ETS-samstarfinu er í rauninni ekki verið að tala um neitt annað en að vanefna skuldbindingar samkvæmt EES-samningnum. Það kemur ekki til greina vegna þess að það myndi stórskaða hagsmuni atvinnulífs og neytenda á Íslandi og þar hef ég sérstaklega áhyggjur af iðnaði á Íslandi. Ég hef áhyggjur af álinu og það sama gildir um CBAM í þessum efnum. Ég vonast bara eftir góðri samstöðu um það í þessum sal að efna EES-skuldbindingar og styrkja þannig EES-samstarfið. ETS2-kerfið og CBAM eru hluti af því.