158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:24]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Það er langt síðan allir samningsaðilar að EES-samningnum féllust á að ETS-kerfið fæli í sér loftslagssamstarf, umhverfissamstarf, og það ætti að falla undir EES-samninginn. Það gerðist löngu áður en núverandi ríkisstjórn tók við. Ég get alveg tekið undir áhyggjur hv. þingmanns, t.d. af sjóflutningum, og mér finnst að mörgu leyti óskiljanlegt að ekki skyldi vera gengið rösklega til verka á síðasta kjörtímabili þegar kom að því að sækjast eftir undanþágum eða sérlausnum frá sjóflutningum.

Hér hefur orðið breyting frá því að ný ríkisstjórn tók við. Við höfum verið að vinna að sérstökum greiningum og komið þeim á framfæri við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vegna skipaflutninga og vegna sérstöðu Íslands sem eyríkis hérna í Norður-Atlantshafinu. Þarna held ég að geti verið sóknarfæri fyrir okkur nú þegar yfir stendur endurskoðun á ETS-kerfinu. CBAM er auðvitað hluti af þessu öllu. Þar sjáum við jákvæðar umsagnir, t.d. frá Alcoa og Elkem, og ég vil bara undirstrika hvað það að klára CBAM fyrir áramótin er mikilvægt upp á virkni EES-samstarfsins og ETS-kerfisins. (Forseti hringir.) Þetta snýst um samkeppnishæfni, m.a. íslensks ál- og kísiljárnsiðnaðar, og samkeppnishæfni iðnaðar í Evrópu, t.d. í samkeppni við Kína.