fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir yfirferðina. Undanfarin ár hefur töluverð umræða farið fram um umfang þess fjármagns sem ríkið ver til loftslagsmála. Þar hafa oft verið nefndar háar fjárhæðir og ekki alltaf verið fyllilega ljóst hvaða verkefni og útgjöld liggja að baki þeim tölum. Mér finnst mikilvægt að framsetning sé eins gegnsæ og mögulegt er svo þingið og almenningur geti áttað sig á umfangi fjárveitinganna og því hvernig þeim er ráðstafað. Því langar mig að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað skýrir þær háu fjárhæðir sem hafa á undanförnum árum verið tilgreindar sem loftslagsfjármagn, í hvaða verkefni og aðgerðir renna þessir fjármunir í reynd og eru verkefni á borð við borgarlínu enn talin til loftslagsfjármagns eða hefur því verið breytt hvaða útgjöld falla þar undir?