158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:27]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn því ég held að það sé mikilvægt að auka skýrleikann hvað þetta varðar. Hér hefur svolítið tíðkast um nokkurra ára skeið að talin séu til ýmis útgjöld, jafnvel útgjöld sem hafa ósköp lítið með loftslagsmál að gera og þau kölluð loftslagsútgjöld, að því er virðist, vegna þess að hér voru ríkisstjórnir við völd sem vildu tala með mjög uppsprengdum hætti um loftslagsaðgerðir frekar en að vera með fæturna á jörðinni og reyna að ná raunhæfum markmiðum og láta orðum fylgja efndir.

Hvað varðar borgarlínu t.d. þá held ég að það sé ekkert endilega heppilegt að tiltaka hana sérstaklega sem loftslagsaðgerð. Við höfum verið í vinnu með fjármálaráðuneytinu sem miðar að auknum skýrleika í þessum efnum og ég vil líka vekja athygli á svörum sem hafa borist við fyrirspurnum þingmanna um þessi mál. Það er auðvitað gríðarlega mikilvægt þegar við erum að verja miklu fé til þessara mála að þess sé gætt að það sé gert með ábatasömum hætti og að við forgangsröðum þeim aðgerðum sem fela í sér fjölþættan ávinning, að við forgangsröðum þeim aðgerðum sem skila raunverulegum og mestum loftslagsábata. Mér finnst það t.d. mjög umhugsunarvert hvernig gengið var fram hér um árabil þegar kemur að bílaleigufyrirtækjum. Þar reiknast okkur til að u.þ.b. 10 milljarðar á örfáum árum hafi runnið til bílaleigufyrirtækja í nafni loftslagsmála án þess að neinn sjáanlegur árangur yrði þegar kemur að rafvæðingu þess geira.