158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:29]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Það vill einmitt svo til að við erum um þessar mundir að taka til í aðgerðaáætlun loftslagsmála og útbúa mælikvarða fyrir hverja einustu aðgerð. Það er löngu tímabært skref að gera þetta. Við vorum að klára þetta og ég hlakka til að birta þessa mælikvarða í lok mánaðar. Í því felst ákveðið fjölþáttamat, þ.e. að skoða ávinning, ekki bara út frá loftslagsmálum heldur líka samfélagslegan ávinning, umhverfislegan ávinning o.s.frv.

Ég vil líka benda á ákveðnar breytingar sem hafa orðið hjá Loftslags- og orkusjóði núna á síðustu tveimur árum. Annars vegar að tekið var upp fagráð sem fer yfir umsóknir út frá einmitt hlutlægum mælikvörðum um að aðgerðir skili sem mestum samdrætti í losun á hverja styrkkrónu. Hins vegar hefur Loftslags- og orkusjóður tekið upp nýtt verklag þegar kemur að ársskýrslu sjóðsins þar sem reiknaður er sérstaklega loftslagsábati hverrar aðgerðar í þágu aukins gagnsæis þannig að það ríki traust um það að verið sé að nýta þessa fjármuni með skilvirkum og skynsamlegum hætti.