158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:31]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir innblásna upphafsræðu sem ég verð nú að segja að stingur svolítið í stúf við aðrar ræður sem hafa verið fluttar undir þessum lið í dag og í gær. Það er nefnilega þannig, virðulegur forseti, að við þingflokksformenn sömdum við forseta þingsins um þessa dagskrá. Við sömdum um að við fengjum hæstv. ráðherra til að koma í hús og ræða þeirra málaflokka í stað þess að ræða hér við hæstv. fjármálaráðherra í tvo daga. Það er gott og hefur bara gengið býsna vel. Þangað til áðan þegar við fengum hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sem ég velti fyrir mér hvort hafi verið tilbúinn með ræðu fyrir stefnuræðu forseta en ekki fengið að flytja hana því að hún var flutt núna áðan. Ég kann honum miklar þakkir fyrir. Þar minntist hann ekki einu orði á sinn málaflokk sem hann var fenginn til að ræða við okkur hv. þingmenn. Þetta er mjög sérstakt, virðulegur forseti.

En gott og vel. Ég get einhvern veginn ekki látið hjá líða, vegna þess að hæstv. ráðherra fór hér enn og aftur að ræða um hið stórkostlega fyrirbæri kílómetragjald og ég held að það sé ágætt að við rifjum enn einu sinni upp söguna um kílómetragjaldið. Það er alveg hárrétt hjá hæstv. ráðherra að þetta var lagt fram og kom inn í þingið á síðasta kjörtímabili. Í meðförum þingsins í síðustu ríkisstjórn var tekin ákvörðun um að leggja þetta frumvarp ekki fram, klára þetta frumvarp ekki hér á þingi, það náði ekki í gegn. Það náði aldrei samþykkt meiri hluta þingsins. Að koma svo hér í ræðu og tala um að hér sé um skattalækkun að ræða út af frumvarpi sem var ekki samþykkt í þinginu — (Forseti hringir.) ég veit ekki hvert menn eru komnir, virðulegur forseti, og ef þetta er hagfræðin sem liggur að baki hjá þessari ríkisstjórn þá er hún ekki mjög burðug. (Forseti hringir.) Síðasta kílómetragjald síðustu ríkisstjórnar var tekjuhlutlaust. Þessi ríkisstjórn bætti við 3,2 milljörðum (Forseti hringir.) og aftur 4 núna. En ég vonast eftir umræðum um (Forseti hringir.) málaflokka hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hér í næsta andsvari.