fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að koma inn á þetta aftur. Þetta er nokkur ráðgáta. Hvernig var hægt að eyða 10 milljörðum í orkuskipti hjá bílaleigufyrirtækjum án þess að við sjáum skýr merki um það í tölunum yfir t.d. nýskráningar bensín- og dísilbíla annars vegar og rafbíla og tengiltvinnbíla hins vegar? Það sem við sjáum er að hlutfall rafbíla hjá ökutækjaleigunum hefur varla hækkað svo neinu nemi, kannski farið úr 7% upp í 12% eða eitthvað slíkt á nokkrum árum. Með öllum þessum fjármunum, bæði með beinum framlögum og með ýmsum skattaívilnunum og afsláttum, þá skilst mér að þetta séu 9,8 milljarðar. Ég myndi glaður vilja með fjármálaráðuneytinu deila þessum upplýsingum með þingheimi og þessari samantekt. Staðan er enn þannig að almenningur er að veðja á rafbíla en ekki bílaleigurnar. (Forseti hringir.) Í rauninni stjórna kaup þeirra að miklu leyti eftirmarkaðnum, bílaleigurnar stjórna því hvernig bílar eru í boði (Forseti hringir.) á eftirmarkaði á næstu árum. Þar hefur sáralítill árangur náðst.