158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:38]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir ræðu sína hér í upphafi þó að ég vilji meina að hún hafi verið algjörlega út úr kú og auðvitað ekki átt heima í þessari umræðu þótt hressileg væri. Mig langar samt í ljósi þess að sú ræða var flutt að byrja á því að segja mína skoðun á frammistöðu núverandi ríkisstjórnar og vil benda föðurlega á að það hefði verið skynsamlegra að vera með meiri væntingastjórnun í upphafi. Ríkisstjórnin hafði mjög mikið fylgi og býr í rauninni jafnvel enn að því. Þess vegna hefði ríkisstjórnin í rauninni átt að nota tækifærið til þess að vara Íslendinga við því að það myndi verða erfitt að takast á við það verkefni sem fyrir lá. Þá hefðum við t.d. getað sparað þessa 134 milljarða sem hafa t.d. komið í mínus núna á síðustu tveimur árum. Við værum ekki að glíma við það, það væri mun lægri tala. Mér fannst samt steininn taka úr þegar hæstv. ráðherra fór að ræða börn með fjölþættan vanda. Ég verð að segja að það er eiginlega móðgun við sveitarfélögin í landinu að tala hér um börn með fjölþættan vanda þegar það er algerlega augljóst að ríkið er ekki að gera neitt annað alla daga en að skilgreina sig frá þeim samningi og láta sveitarfélögin sitja uppi með nákvæmlega sama reikning og þau voru með, það er niðurstaðan. En varðandi málefnasvið ráðherra þá langar mig til að forvitnast á þessum 20 sekúndum sem ég á eftir og velta því upp við ráðherrann, af því að hann er að spara og hann er að spara helling — ég sé ekki nákvæmlega, t.d. varðandi loftslagssjóðinn, hvar þessi sparnaður er að koma niður. Það væri gaman ef ráðherra gæti kannski farið örlítið yfir það hvernig sá sparnaður skiptist þannig að maður hafi aðeins hugmynd um hvað maður er að horfa fram á.