158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:40]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Það er fráleitt að tala eins og ríkisstjórnin sé að vanrækja með einhverjum hætti málefni barna með fjölþættan vanda þegar einmitt eitt af okkar fyrstu verkum er að skrifa undir samning við sveitarfélögin og stórauka framlög ríkisins til þessara málaflokka. Já, svo er deilt um skilgreiningar o.s.frv. en það breytir ekki því að ríkið er að stíga þarna inn af meiri krafti en gert hefur verið árum saman.

Varðandi væntingastjórnun þá höfum við auðvitað reynt að tala skýrt frá því að við tókum við um að verkefnið sé að laga ríkisfjármálin, greiða niður skuldir, fækka verkefnum, stofnunum og ráðuneytum. Þetta hefur gengið eftir og nú erum við komin á þennan stað að leggja loksins fram hallalaus fjárlög. Það skiptir gríðarlegu máli upp á væntingar til framtíðar.

Varðandi fjárheimildir Loftslags- og orkusjóðs þá hafa þær verið mjög verulegar á undanförnum árum, t.d. yfir 11 milljarðar árið 2025, sem gerði okkur kleift að ráðast í stærsta orkuskiptaátak sögunnar úr sjóðnum. Ég tel í þessu ljósi eðlilegt að þessi málaflokkur taki á sig aðhald eins og flestir málaflokkar ríkisins núna. Þá er það verkefni okkar að forgangsraða þeim aðgerðum sem skila mestum ávinningi. Því miðar vel. Við höfum auðvitað verið að styðja við orkuskipti í samgöngum með styrkjum til kaupa á rafbílum en um leið hafa orðið ákveðnar breytingar á gjaldtöku sem hafa gert rafbíla samkeppnishæfari í verði en áður miðað við bensín- og dísilbíla. Ég held að auðvitað geri allir ráð fyrir því að þeir styrkir muni breytast eitthvað á næstu mánuðum og árum. Ég held að það sé óhjákvæmilegt, sérstaklega í ljósi þessa markmiðs okkar um að nýta þessa fjármuni með skilvirkum og skynsamlegum hætti þannig að loftslagsábatinn verði sem mestur.