fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég ætla að þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið varðandi loftslagssjóðinn. Ég held að það sé einmitt mikilvægt að það komi strax fram þannig að mönnum sé ljóst hvað þar er að fara að gerast.
Ég get ekki látið hjá líða að svara þessu með börn með fjölþættan vanda. Ég þekki þennan vanda alveg ágætlega. Ég var í sveitarstjórn áður en ég fór hingað inn á þing og ég veit nákvæmlega hvaða tölur er um að ræða og ég veit nákvæmlega hvaða væntingar sveitarstjórnirnar hafa í þeim efnum. Það dugar ekki að ríkið komi fram, geri samning, hafi hann óljósan og ætli síðan að skilgreina sig frá vandanum með því að þrengja þennan hóp þannig að það standi eftir þriðjungur af þeim sem um ræðir. Það bara gengur ekki upp, hæstv. ráðherra, svo það sé sagt.
Mig langar síðan að lokum að spyrja hæstv. ráðherra — nú fór hann í umfangsmiklar sameiningar á heilbrigðiseftirlitsumdæmunum og tók yfir þann hluta verkefnisins sem tilheyrði heilbrigðiseftirlitunum áður. (Forseti hringir.) Hvar sé ég þess merki í þessum áætlunum? Ég veit að menn gera ráð fyrir að til lengri tíma verði þetta tekjuhlutlaust. (Forseti hringir.) En ég sakna þess að sjá ekki, alla vega t.d. hér í launa- og verðlagsbótum, að það sé gert ráð fyrir einhverju slíku.