fjárlög 2027.
Forseti. Varðandi börn með fjölþættan vanda þá er staðan núna sú að sveitarfélög eru í betri stöðu en áður upp á 3 milljarða vegna þeirrar aðgerðar sem ríkisstjórnin fór í að þessu leyti. Ég get því ekki tekið undir það að ríkisstjórnin hafi með einhverjum hætti valdið skaða í þessum málaflokki með því að setjast niður með sveitarfélögum og semja við þau og stórauka framlög ríkisins til þessa viðkvæma málaflokks. Ég blæs á það.
Varðandi heilbrigðiseftirlitin þá er það auðvitað þannig að þau hafa alltaf verið fjármögnuð að verulegu leyti í gegnum gjaldskrár. Því verður ekkert breytt þegar þau færast yfir. Ég geri ekki ráð fyrir að þau auknu útgjöld sem þessi starfsemi kallar á hjá minni undirstofnun kalli endilega á frekari fjárheimildir. Þetta verður innan ramma en það sem gerist er að tekjurnar sem áður runnu til heilbrigðiseftirlits svæðanna renna að mestu leyti til Umhverfis- og orkustofnunar til þessarar starfsemi.