fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Orðið orkuskipti bar fyrst á góma í þingsal árið 2010, hygg ég. Síðan hafa liðið mörg ár og tugir, ef ekki hundruð, milljarða hafa farið til verkefna sem hafa verið skilgreind sem verkefni á sviði orkuskipta. Niðurstaðan af öllu þessu bixi er enginn árangur. Notkun endurnýjaðrar orku sem hlutfall af innfluttum orkugjöfum er enn í dag sama hlutfall og var 2010. Ástæðan er auðvitað sú að vegna þess að Íslendingar eru heimsmeistarar í notkun endurnýjanlegrar orku höfum við frá árinu 2010 og löngu fyrir þann tíma verið með 80% eða 90% endurnýjanlegrar orku af allri okkar orkunotkun. Það er í þessu ljósi sem það er svo grátlegt að sjá þessum fjármunum eytt í hin og þessi verkefni sem hefur valdið því að hinir og þessir, sumir, ekki allir, hafa getað mokað úr ríkissjóði fé til einhverra verkefna sem hafa síðan engum árangri skilað og var fyrirséð að myndi ekki skila nokkrum árangri, vegna þess að Íslendingar eru heimsmeistarar í þessu.
Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann sé ekki sammála mér í því að við eigum að hætta að líta til þessara loftslagsmarkmiða endalaust. Við eigum að líta frekar til þeirra hagsmuna sem Íslendingar hafa almennt og hvað það er hagkvæmt. Hvað er hagkvæmt fyrir Íslendinga? Hæstv. ráðherra nefnir það hér að hann vilji ekki koma EES-samningnum í uppnám með því að hrófla við ETS-kerfinu. En segjum sem svo að það yrði ekki, segjum sem svo að hægt væri að breyta ETS-kerfinu með því að fara út úr því án þess að hrófla við EES-samningnum, væri hæstv. ráðherra þá sammála mér um það að það væri skynsamlegt fyrir Íslendinga að fara út úr ETS-kerfinu ef við gætum verið áfram með EES-samninginn? Ég spyr sérstaklega um hugmyndafræðina. (Forseti hringir.) Er hann sammála mér í því að þetta ETS-kerfi víki ekki í neinu að hagsmunum Íslendinga og þjóni hvorki þörfum né hagsmunum Íslendinga?