fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Aðeins aftur um orkuskiptin. Það er t.d. þannig að á síðustu árum hefur ferðamönnum fjölgað upp í tæpar 2 milljónir á ári en á sama tíma hefur samt verið að nást árangur í samdrætti losunar frá vegasamgöngum. Mér finnst það nú bara ákveðið kraftaverk og einmitt til marks um það að orkuskiptin hafa gengið ágætlega og skilað — (Gripið fram í.)Ja, hv. þingmaður er alltaf að tala um orkuframleiðslu, ég er líka að tala um orkunotkun eins og maður gerir þegar maður talar um orkuskipti.
Varðandi ETS-sérlausnina þá hefur það alltaf legið fyrir að í sérlausninni felst ráðstöfun á þessum losunarheimildum, þessum endurgjaldslausu losunarheimildum á kostnað ríkisins. Þannig var það þegar samið var um sérlausnina á sínum tíma og þannig er það ennþá til að styrkja samkeppnishæfni tengiflugs á Íslandi, þannig að það er ekkert nýtt í þessu. Þetta er það sem felst í sérlausnum.