158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:53]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að halda áfram með þennan þráð sem ég var með áðan varðandi bílaleigurnar. Ég verð eiginlega að viðurkenna að ég skil ekki hvernig hægt er að komast á þennan stað. Það er alveg ljóst samkvæmt regluverkinu að ef þetta eru 9,8 milljarðar kr. sem bílaleigurnar hafa verið að fá í styrki til að kaupa rafbíla og það skilar sér ekki út á endursölumarkaðinn þá er það mjög undarlegt. Ég næ ekki utan um hvernig það getur einhvern veginn gerst.

Það sem mig langar hins vegar að spyrja hæstv. ráðherra að er að í kafla 15 í fjárlögunum, Orkumál, eru hérna fjármagnstilfærslur sem eru samkvæmt ríkisreikningi 2025 rúmir 11 milljarðar kr. Samkvæmt fjárlögum 2026 fara þær niður í tæpa 5,2 milljarða kr. og 1,9 samkvæmt frumvarpinu. Ég skal bara viðurkenna fáfræði mína á þessu sviði en mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað er að gerast þarna? Vegna þess að þetta er alveg rosalega mikil lækkun á milli ára, aðallega milli ríkisreiknings 2025 og fjárlaga 2026 og síðan enn þá meira núna í frumvarpinu. Ef hæstv. ráðherra gæti útskýrt fyrir mér hvað þetta er.